Viðskiptaskilmálar
Seljandi vöru og þjónustu er Casa mia ehf, kennitala 580920-1600. Virðisaukaskattsnúmer 138803. Kaupandi er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikning.
Þessi skilmáli gildir um sölu á vöru og þjónustu Casa Mia ehf til neytenda. Skilmálinn, sem staðfestur er með staðfestingu á kaupum, er grunnurinn að viðskiptunum. Um neytendakaup þessi er fjallað um í lögum um neytendakaup nr. 48 frá 20. mars 2003.
Verð á efni og þjónustu á það til að breytast hjá seljanda vegna verðbreytinga birgja. Ef verð á vöru hækkar eftir pöntun viðskiptavinar, gildir það verð sem samið var um þegar samningur um kaup á efni og þjónustu var gerður. Sundurliðaður heildarkostnaður er tekinn fram áður en kaupandi staðfestir kaup á efni og þjónustu. Engin aukakostnaður bætist við þá upphæð sem samið var um áður en vara er afhent og verk unnið.
Sé þess óskað þá býður Casa mia ehf upp á örugga greiðslugátt frá Rapyd til að taka á móti greiðslum. Hægt er að greiða með kreditkortum frá Visa og Mastercard. Eftir að samkomulag hefur náðst um verð á efni og þjónustu og skil á verki, fær kaupandi sendan greiðslulink í gegnum viðurkennt, öruggt og dulkóðað kerfi Rapyd. Viðskiptavinur færir inn kortaupplýsingar og gengur frá greiðslu. Þegar greiðsla er framkvæmd með kredit- eða debetkorti, VISA eða Mastercard, er greiðslan skuldfærð þegar í stað og heimild fæst. Allir kredit- og debetkortakorthafar gangast undir skilmála kortaútgefanda.
Ef efni reynist gallað á einhvern hátt er seljanda skylt að bjóða kaupanda viðgerð, nýja vöru eða afslátt. Tilkynning á galla verður að berast munnlega eða skriflega. Mælt er með að tilkynningin berist innan 30 daga frá því galli uppgötvast. Vegna skráningargildis er mælt með að kaupandi sendi tölvupóst um gallann og geymi afrit. Seljandi sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins.
Ábyrgð vegna galla á vöru er 2 ár eftir kaupdagsetningu til einstaklinga .Ef um ræðir sölu á vöru til fyrirtækis er ábyrgð á galla 1 ár samkvæmt neytendalögum og lögum um lausafjárkaup. Ábyrgðin nær ekki til eðlilegs slits eða notkunar á vörunni.
Ef upp kemur ágreiningur skal ávallt reyna að leysa öll mál á einfaldastan og sanngjarnan hátt.